Fara í innihald

Clement Attlee

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Clement Attlee
Attlee í kringum 1945.
Forsætisráðherra Bretlands
Í embætti
26. júlí 1945 – 26. október 1951
ÞjóðhöfðingiGeorg 6.
ForveriWinston Churchill
EftirmaðurWinston Churchill
Leiðtogi Verkamannaflokksins
Í embætti
25. október 1935 – 7. desember 1955
ForveriGeorge Lansbury
EftirmaðurHugh Gaitskell
Persónulegar upplýsingar
Fæddur3. janúar 1883(1883-01-03)
Putney, Surrey, Englandi
Látinn8. október 1967 (84 ára) London, Englandi
ÞjóðerniBreskur
StjórnmálaflokkurVerkamannaflokkurinn
MakiViolet Millar (g. 1922; d. 1964)
Börn4
HáskóliUniversity-háskóli, Oxford

Clement Richard Attlee, 1. jarlinn Attlee (3. janúar 1883 – 8. október 1967) var breskur stjórnmálamaður sem gegndi embætti forsætisráðherra Bretlands á árunum 1945 til 1951. Hann var leiðtogi Verkamannaflokksins frá 1935 til 1955.

Árið 1942 gerðist Attlee aðstoðarforsætisráðherra Bretlands í þjóðstjórn Verkamannaflokksins með Íhaldsflokknum undir forsæti Winstons Churchill. Flokkarnir mynduðu stjórn saman vegna seinni heimsstyrjaldarinnar og unnu saman til stríðsloka árið 1945. Í þingkosningunum það ár vann Verkamannaflokkurinn óvæntan stórsigur og fékk í fyrsta sinn að stofna eigin meirihlutastjórn þar sem Attlee varð forsætisráðherra.

Stjórn Attlee framkvæmdi ýmsar umbætur sem áttu að hjálpa Bretlandi á eftirstríðsárunum. Á þessum tíma var 12% fylgisaukning Verkamannaflokksins í kosningunum fordæmalaus og er enn sú mesta sem nokkur flokkur hefur náð fyrir kosningar í Bretlandi. Attlee var endurkjörinn árið 1950 með mjög naumum þingmeirihluta en kallaði til nýrra kosninga árið eftir til þess að reyna að styrkja stöðu sína. Þar tapaði hann hins vegar naumlega fyrir Churchill og Íhaldsmönnunum þrátt fyrir að hafa fengið fleiri atkvæði. Attlee var þaulsætnasti leiðtogi Verkamannaflokksins.

Ólíkt Churchill þótti Attlee hæverskur og lítillátur. Hann átti í erfiðum með almannatengsl og skorti persónutöfra. Styrkleiki hans þótti liggja baksviðs, sérstaklega í hópnefndum þar sem hann naut góðs af þekkingu sinni, hljóðlæti, hlutlægni og skynsemi.

Clement Attlee var sonur háttsetts málaflutningsmanns í Lundúnum. Hann nam lögfræði við Oxford-háskóla og hóf störf sem aðstoðarmaður á lögmannsstofu föður síns árið 1904. Árið 1907 gekk Attlee í Óháða verkamannaflokkinn og hlaut fagmenntun hjá sambandi verslunar- og skrifstofumanna.[1] Stuttu áður en fyrri heimsstyrjöldin braut út bauð Sidney Webb honum kennarastöðu við félagsmáladeild Hagfræðiskóla Lundúna. Þegar styrjöldin hófst bauð Attlee sig fram til herþjónustu þrátt fyrir að vera friðarsinni. Hann barðist í orrustum í Gallipoli, Mesópótamíu og Frakklandi og náði majórstign áður en stríðinu lauk.[2]

Attlee var kjörinn á neðri málstofu breska þingsins í fyrsta sinn árið 1922 í kjördæminu Limehouse.[3] Hann varð aðstoðarhermálaráðherra í minnihlutastjórn Ramsay MacDonald árið 1924 og gegndi ýmsum embættum í stjórnum MacDonalds til ársins 1931.[4] Eftir afhroð Verkamannaflokksins í kosningunum 1931 var Attlee einn af fáum forstöðumönnum flokksins sem enn áttu sæti á þingi og hann gerðist því aðstoðarformaður flokksins.

Þegar George Lansbury sagði af sér árið 1935 var Attlee kjörinn leiðtogi Verkamannaflokksins og varð jafnframt leiðtogi stjórnarandstöðunnar.[5] Í fyrstu var Attlee málsvari friðar og málamiðlunar en hann skipti fljótt um skoðun og árið 1938 var hann orðinn harður gagnrýnandi friðþægingarstefnu Nevilles Chamberlain gagnvart hernaðarstefnu Adolfs Hitler og Benito Mussolini.[6]

Eftir að seinni heimsstyrjöldin hófst leiddi Attlee Verkamannaflokkinn í stjórnarsamstarf við Íhaldsflokk Churchill árið 1940 og gerðist aðstoðarforsætisráðherra árið 1942. Samstarf Attlee og Churchill var gott og skiptist þannig að Attlee tók að sér flest smáatriði og skipulagningu baksviðs innan þingsins á meðan Churchill einbeitti sér að utanríkis- og hernaðarmálum. Þegar stríðinu í Evrópu lauk með sigri bandamanna í maí 1945 var þjóðstjórnin leyst upp og boðað var til þingkosninga sem fóru fram tveimur mánuðum síðar. Margir bjuggust við því að persónuvinsældir Churchills myndu skila Íhaldsflokknum auðveldum sigri en þvert á þær væntingar vann Verkamannaflokkurinn stórsigur.[7]

Ríkisstjórn Attlee kom á fót ýmsum fordæmum sem fylgt var á eftirstríðsárunum. Verkamannaflokkurinn tileinkaði sér þá stefnu að atvinnuleysi yrði haldið niðri með aðgerðum í anda keynesískrar hagfræði og kom að stofnun mun sterkara velferðakerfis. Í stjórnartíð hans voru ýmis þjónustu- og iðnaðarfyrirtæki ríkisvædd og bresku Þjóðarheilbrigðisþjónustunni komið á fót. Attlee lét Ernest Bevin að mestu um utanríkismál en hafði þó mikinn áhuga á Indlandi. Stjórn Attlee sá um skiptingu breska Indlands í sjálfstæðu ríkin Indland og Pakistan árið 1947 auk þess sem stjórnin skildi Mjanmar og Srí Lanka frá Indlandi og gerði þau sjálfstæð. Ríkisstjórn hans batt enda á umboðsstjórn Breta í Palestínu og Jórdaníu. Frá árinu 1947 beittu þeir Bevin þrýstingi á Bandaríkin til að fá þá til að taka virkari þátt í kalda stríðinu gegn Sovétríkjunum. Þegar Bretar neyddust til að yfirgefa Grikkland árið 1947 bað Attlee Bandaríkjamenn að standa gegn Kommúnistum þar í samræmi við Truman-kenninguna. Attlee var ötull stuðingsmaður Marshalláætluninnar til að endurreisa Vestur-Evrópu með bandarísku fé. Árið 1949 studdi hann við stofnun Atlantshafsbandalagsins og aðgöngu Breta að því. Einnig samþykkti Attlee að Bretland skyldi koma sé upp eigin kjarnavopnum, beitti 13.000 manna herfjölda og sérstakri löggjöf til að bæla niður hafnarverkföll árið 1949 og sendi breska hermenn til að berjast í Kóreustríðinu eftir nauman kosningasigur hans árið 1950.

Eftir nauman ósigur sinn fyrir Churchill árið 1951 gerðist Attlee leiðtogi stjórnarandstöðunnar á ný. Hann hélt áfram sem formaður Verkamannaflokksins en var mun áhrifaminni. Hann sagði af sér eftir annan ósigur flokksins árið 1955 og gerðist þingmaður á lávarðadeild breska þingsins.[8] Attlee lést árið 1967.[9]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Ævisaga Clements Attlee“. Alþýðublaðið. 12. ágúst 1948. bls. 5; 7.
  2. ↑ „Clement Attlee“. Lesbók Morgunblaðsins. 14. mars 1965. bls. 2; 12.
  3. ↑ „Clement R. Attlee“. Alþýðublaðið. 29. desember 1949. bls. 5.
  4. ↑ „Hinn nýi forsætisráðherra Breta og samstarfsmenn hans“. Morgunblaðið. 16. mars 1945. bls. 7.
  5. ↑ „Clement Attlee“. Tíminn. 6. febrúar 1948. bls. 5.
  6. ↑ J. C. Vine (5. september 1947). „Forsætisráðherra Breta Clement Attlee, sem nú á í miklum erfiðleikum“. Morgunblaðið. bls. 7.
  7. ↑ „Nýja stjórnin í Bretlandi“. Fálkinn. 21. september 1945. bls. 4–5.
  8. ↑ Þórarinn Þórarinsson (8. janúar 1963). „Bretar hylla aldinn leiðtoga“. Tíminn. bls. 7.
  9. ↑ „Clement Attlee“. Morgunblaðið. 10. október 1967. bls. 19.


Fyrirrennari:
Winston Churchill
Forsætisráðherra Bretlands
(1945 – 1951)
Eftirmaður:
Winston Churchill