1410
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1410 (MCDX í rómverskum tölum)
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]- Hópur Íslendinga sem verið höfðu strandaglópar á Grænlandi frá 1406 komust loks þaðan er skip kom frá Noregi. Fólkið komst þó ekki heim til Íslands fyrr en 1413. Með brottför þess frá Grænlandi rofnuðu öll tengsl við byggð norrænna manna þar.
- Brúðkaup Guðrúnar Styrsdóttur og Gísla Andréssonar í Mörk. Guðrún var þá talin ekkja eftir Snorra Torfason, sem ekkert hafði spurst til frá 1406, en árið 1413 kom hann til landsins og hafði verið tepptur í Grænlandi og síðan Noregi vegna siglingaleysis.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Ólöf Loftsdóttir, hefðarkona (d. 1479).
- Þorvarður Loftsson, höfðingi (d. 1446).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Ólafur Pétursson, hirðstjóri.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 25. mars - Mingveldið sendi 100.000 hermenn til að berjast við Mongóla.
- 17. maí - Jóhannes XXIII (Baldassarre Cossa) var kjörinn páfi á kirkjuþinginu í Pisa. Voru þá þrír páfar samtímis, Gregoríus XII í Róm og mótpáfarnir Benedikt XIII í Avignon og Jóhannes í Písa.
- 15. júlí - Pólverjar og Litháar unnu sigur á herliði Þýsku riddaranna í orrustunni við Tannenberg.
- 26. júlí - Pólverjar og Litáar sátu um Malbork-kastala, aðsetur Þýsku riddarana. Umsátrið stóð í 2 mánuði og hörfuðu þeir frá kastalanum.
- 16. september - Bog Mára í Andalúsíu, Antequera, laut lægra haldi fyrir konungsríkinu Kastilíu.
- Jan Hus var bannfærður af erkibiskupnum í Prag.
- Stjörnuúrið var smíðað í Prag.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- (líklega) Johannes Ockeghem, flæmskt tónskáld (d. 1497).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 3. maí - Alexander V mótpáfi (f. um 1339).
- 31. maí - Marteinn 1. Aragóníukonungur (f. 1356).
- - Beatrís af Portúgal, síðar drottning Portúgals og Kastilíu (f. 1372).