Þórín
| Serín | |||||||||||||||||||||||||
| Aktín | Þórín | Protaktín | |||||||||||||||||||||||
| |||||||||||||||||||||||||
Þórín (eða þóríum) er geislavirkt frumefni sem er eitt af fimmtán efnum sem flokkast sem aktiníð. Þórín hefur táknið Th og er með sætistöluna 90 í lotukerfinu. Þórín er silfurgrátt á lit en verður svart þegar það hvarfast við súrefni. Það er tiltölulega mjúkt og sveigjanlegt og hefur hátt bræðslumark. Það hefur stöðugt oxunarstig +4, er mjög hvarfgjarnt og getur brunnið í súrefni ef það er sallað fínt.
Ásamt úrani, er þórín eina frumefnið sem á sér enga stöðugar samsætur, en finnst samt í miklu magni í náttúrunni. Það er til skoðunar til notkunar í stað úrans við framleiðslu kjarnorku. Að margra áliti er þórín ákjósanlegra við kjarnorkuframleiðslu þar sem (í framkvæmd) er ekki unnt að nota það til að búa til kjarnavopn.[1] Þar að auki er úrgangurinn sem myndast síður varasamur.[2][3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Martin, R. (2009). „Uranium is So Last Century – Enter Thorium, the New Green Nuke“. Wired. Afrit af uppruna á 26 júní 2010. Sótt 19 júní 2010.
- ↑ „IAEA-TECDOC-1349 Potential of thorium-based fuel cycles to constrain plutonium and to reduce the long-lived waste toxicity“ (PDF). International Atomic Energy Agency. 2002. Afrit (PDF) af uppruna á 28 apríl 2021. Sótt 24. mars 2009.
- ↑ Evans, B. (2006). „Scientist urges switch to thorium“. ABC News. Afrit af upprunalegu geymt þann 28. mars 2010. Sótt 17. september 2011.
