Verkfræði
Verkfræði er fræði- og starfsgrein, sem beitir vísindalegum aðferðum sem byggjast einkum á stærðfræðigreiningu og eðlisfræði, við hönnun, rannsóknir, verkstjórnun, eftirlit og fleira.

Starfsheitið „verkfræðingur“ er lögverndað á Íslandi samkvæmt lögum númer 8 frá 11. mars 1996. Þeir einir geta kallað sig verkfræðinga, sem lokið hafa námi í verkfræði á meistarastigi (eða sambærilegu) í háskóla.
Heiti
breytaVið þýðingu á texta þarf að hafa í huga að enska orðið engineer er mun víðtækara en íslenska orðið „verkfræðingur“. Engineer getur líka átt við íslensku starfsheitin tæknimaður, vélfræðingur, vélstjóri, tæknifræðingur og svo framvegis, sem getur valdið ruglingi við þýðingu. Til dæmis væri nær lagi að tala um tæknisveit hers í stað verkfræðisveitar. Á ensku á starfsheitið civil engineer einkum við byggingaverkfræðing, en í Skandinavíu á sambærilegt heiti (sænska: civilingenjör) við prófgráðu í verkfræði sem er sambærileg við meistaragráðu og er notað um verkfræðinga almennt. Engineering technology er enskt heiti yfir tæknifræði.
Verkfræðigreinar
breytaMegingreinar verkfræðinnar eru:
- Byggingaverkfræði
- Efnaverkfræði
- Rafmagnsverkfræði
- Vélaverkfræði
Undirgreinar eru meðal annars: