Fara í innihald

Sveitserstíll

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þingholtsstræti 29 í Reykjavík er dæmi um hús í sveitserstíl.

Sveitserstíll er norðurevrópskur byggingarstíll sem var ríkjandi við gerð timburhúsa frá um 1840 til um 1935. Stíllinn dregur nafn sitt af því að fyrirmyndir hans voru timburhús í Alpafjöllum, í Sviss og Þýskalandi.[1]

Talað er um „sveitserhús“ þegar viðkomandi bygging er byggð í þessum stíl, en einnig er talað um „sveitserglugga“ þegar slíkt á uppruna sinn í hinum norska sveitser.

Sveitserstíllinn barst til Íslands með norskum hval- og síldarútvegsmönnum á síðasta áratug 19. aldar. Á Íslandi varð til svokallaður „bárujárnssveitser“ þar sem húsin voru klædd með bárujárni.[2]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Sveitserstil og sveitserhus“. Stiltre (norska). Sótt 24 apríl 2022.
  2. ↑ „Sveitserstíll“. Árnastofnun. Afrit af upprunalegu geymt þann 27.7.2008.
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.