Fara í innihald

Sitkagreni

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sitkagreni
Sitkagreni
Sitkagreni
Ástand stofns
Vísindaleg flokkun
Ríki: Jurtaríki (Plantae)
Fylking: Berfrævingar (Pinophyta)
Flokkur: Barrtré (Pinopsida)
Ættbálkur: Pinales
Ætt: Þallarætt (Pinaceae)
Ættkvísl: Greni (Picea)
Tegund:
P. sitchensis

Tvínefni
Picea sitchensis
(Bong.) Carr.
Útbreiðsla sitkagrenis
Útbreiðsla sitkagrenis
Barr og köngull.

Sitkagreni (fræðiheiti: Picea sitchensis) er sígrænt barrtré af þallarætt. Fullvaxið tré nær um 50-70 metra hæð (hæsta tré hefur þó náð 97 metrum) og 5 metra stofnþvermáli og er stórvaxnasta tegund grenitrjáa. Það er ein fárra tegunda sem ná yfir 90 m. hæð.[2] Sitkagreni er langlíft og nær allt að 700 ára aldri.

Sitkagreni er upprunnið á vesturströnd Norður-Ameríku og vex nálægt sjó frá Kodiakeyju í Alaska í norðri suður til norðanverðrar Kaliforníu. Sitkagreni hefur þó verið plantað víða um heim í nytjaskógrækt, einkum í Evrópu.

Sitkagreni er mikið notað í nytjaskógrækt fyrir framleiðslu timburs og pappírs. Viður þess er sérlega gagnlegur við gerð strengjahljóðfæra. Tréð vex hratt og er harðgert og er þess vegna vel metið í skógrækt við erfið skilyrði.

Sitkagreni á Íslandi

[breyta | breyta frumkóða]

Sitkagreni var fyrst flutt inn frá Danmörku á árunum 1920-1930 og nokkru síðar frá Noregi. Í seinni heimstyrjöld fengust fræ frá Alaska þegar Hákon Bjarnason, skógræktarstjóri, myndaði sambönd þar.

Í aprílhretinu 1963 þegar hitinn hrapaði úr 12 C° í -8 C° á sex klukkustundum urðu skemmdir á Alaska strandafbrigði sitkagrenis mun minni en á skyldum tegundum.

Hæstu og sverustu tré á Íslandi eru oftast tré af tegund sitkagrenis. Sumarið 2022 mældist hæsta tréð á Kirkjubæjarklaustri yfir 30 metrum. [3]

Sitkagreni er eitt algengasta skógræktartré á Íslandi. [4]. Árin 2002 og 2022 voru sitkagreni valin tré ársins af Skógræktarfélagi Íslands.

  • Auður I. Ottesen (ritstj.) (2006). Barrtré á Íslandi. Sumarhúsið og garðurinn. ISBN 9979-9784-0-6.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Farjon, A. (2013). „Picea sitchensis“. The IUCN Red List of Threatened Species. 2013. IUCN: e.T42337A2973701. doi:10.2305/IUCN.UK.2013-1.RLTS.T42337A2973701.en. Afrit af upprunalegu geymt þann 23 júní 2019. Sótt 8 nóvember 2017.
  2. ↑ „Tallest Sitka Spruce“. Landmark Trees. Sótt 9 apríl 2012.[óvirkur tengill]
  3. ↑ Hæsta tré landsins er tré ársins Skoðað 12 september, 2022.
  4. ↑ Trjátegundir Skog.is. Skoðað 15. ágúst, 2016.
  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.