Fara í innihald

Notandaspjall:Lafi90

Innihald síðu er ekki stutt á öðrum tungumálum.
Bæta við umræðu
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Síðasta athugasemd: fyrir 1 ári eftir Berserkur í umræðunni Vísað í minningargreinar

Vísað í minningargreinar

[breyta frumkóða]

Hæ. Ég sé í breytingarágripum að þú ert hikandi við að nota minningargrein sem heimild vegna höfundaréttar. Þú ert líklega með í huga nýlegt dómsmál þar sem slegið var á puttana á ákveðnum fjömiðli fyrir að endurbirta hluta úr minningargreinum. Það er ekkert að því að vísa til minningargreinar (eða öllu heldur æviágrips sem fylgir minningargreinum) sem heimild fyrir fullyrðingum um líf og störf einstaklings. Það sem dómurinn gerir mest athugasemd við er endurbirting á texta minningargreina sem í meðförum þessa fjölmiðils var í þokkabót stundum afskræmd og sett fram án þess að vísa til höfundar. Mér finnst dómurinn reyndar ganga óþarflega langt í því að taka minningargreinar sérstaklega út fyrir sviga og láta eins og önnur lögmál eigi að gilda um tilvitnunarrétt en gildir um annað efni, en það breytir svosem engu fyrir okkur. Við erum ekki að taka upp texta óbreyttan úr slíku efni. Bjarki (spjall) 16. janúar 2025 kl. 19:09 (UTC)Svara

Sæll. Já það var akkúrat það sem ég hafði í huga. Mér líður eitthvað svo asnalega að vita eitthvað, og jafnvel að fá það einmitt staðfest úr minningargreinum, en að mega svo ekki hlekkja í þær. Það er fátt sem ég hata eins mikið og "Sko, þetta var bara svona. trustmebro.jpg".
Ég held að við verðum bara að prófa að gera einhverjar tilraunir.
Hvort heldurðu að væri þá vænna að vitna í greinarnar beint á mbl eða bíða eftir að blaðið sé prentað/gefið út, og vitna þá í birtingu þess á timarit.is? Lafi90 (spjall) 16. janúar 2025 kl. 19:17 (UTC)Svara
Bara hvað sem er. Hlekkurinn á mbl er það sem er aðgengilegast núna. Bjarki (spjall) 16. janúar 2025 kl. 19:31 (UTC)Svara
Prófum það og sjáum hvað gerist. Lafi90 (spjall) 16. janúar 2025 kl. 19:32 (UTC)Svara
Ætti nokkuð að gerast... fyrst við stjórnendur erum á þessari línu að það megi hlekkja þær? --Berserkur (spjall) 16. janúar 2025 kl. 19:46 (UTC)Svara