Fara í innihald

Lewis Hamilton

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lewis Hamilton
Hamilton árið 2022
FæddurLewis Carl Davidson Hamilton
7. janúar 1985 (1985-01-07) (41 árs)
Stevenage, Hertfordshire, England
Formúlu 1 ferill
ÞjóðerniBretland Breskur
2026 liðFerrari
Númer bíls44
Keppnir382 (382 ræsingar)
Heimsmeistaratitlar7 (2008, 2014, 2015, 2017, 2018, 2019, 2020)
Sigrar105
Verðlaunapallar203
Stig á ferli5051.5
Ráspólar104
Hröðustu hringir68
Fyrsta keppniÁstralski kappaksturinn 2007
Fyrsti sigurKanadíski kappaksturinn 2007
Síðasti sigurBelgíski kappaksturinn 2024
Seinasta keppniKínverski kappaksturinn 2026
2025 sæti6. (156 stig)
Aðrar mótaraðir
  • 2006
  • 2004-2005
  • 2003
  • 2002-2003
  • 2002
  • GP2 Series
  • F3 Euro Series
  • British F3
  • British Formula Renault
  • Formula Renault Eurocup
Titlar
  • 2006
  • 2005
  • 2003
  • GP2 Series
  • F3 Euro Series
  • British Formula Renault
Undirskrift
Vefsíðalewishamilton.com

Sir Lewis Carl Davidson Hamilton (f. 7. janúar, 1985) er breskur ökuþór sem keppir í Formúlu 1 fyrir Ferrari. Hamilton hefur unnið heimsmeistaratitill ökumanna í Formúlu 1 sjö sinnum sem er met sem hann deilir með Michael Schumacher. Hamilton á metin í að vinna flestar keppnir (105), flestir ráspólar (104), og verðlaunapallar (202), ásamt öðru.

Hamilton er fæddur og uppalinn í Stevenage og byrjaði í go-kart 6 ára. Eftir að hafa unnið nokkra breska titla í go-kart náði hann athygli Ron Dennis, þáverandi liðsstjóri McLaren, sem fékk hann í McLaren akademíuna. Hann sigraði Formula 3 Euro seríuna og GP2 mótaröðina (Formúla 2) og skrifaði í kjölfarið undir sem ökumaður fyrir McLaren í Formúla 1 fyrir 2007 tímabilið með Fernando Alonso sem liðsfélaga. Á fyrsta tímabilinu sínu vann Hamilton 4 keppnir og endaði í öðru sæti í ökumannsmótinu, einu stigi á eftir Kimi Räikkönen. Hamilton vann fyrsta titil sinn 2008 og varð þá yngsti ökumaðurinn til að vinna titil ökumanna á þeim tíma.[1] Árið 2013 fór Hamilton frá McLaren og skrifaði undir hjá Mercedes og varð liðsfélagi Nico Rosberg sem hafði áður verið liðsfélagi hans í go-kart.[2] Hamilton vann ökumannstitilinn 2014 og 2015. Rosberg tók ökumannstitilinn 2016 og hætti þá í Formúlu 1. Valtteri Bottas kom þá í stað Rosberg. Hamilton hélt áfram sigurgöngu sinni og vann ökumannstitilinn frá 2017 til 2020. Hörð barátta var á milli Hamilton og Max Verstappen árið 2021 sem fór að Verstappen vann titill eftir umdeilda niðurstöðu í seinustu keppni tímabilsins.[3] Hamilton fór sigurlaus í gegnum 2022 og 2023 tímabilið en vann tvær keppnir 2024 tímabilið. Hann skrifaði undir hjá Ferrari fyrir 2025 tímabilið og er samningsbundinn þeim út 2026 tímabilið.[4]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Darjan Petrić (2. nóvember 2024). „Dramatic 2008 Brazilian GP – Hamilton wins the title in the last lap“. maxf1.net. Sótt 13. apríl 2025.
  2. ↑ Andrew Benson (28. september 2012). „Lewis Hamilton to leave McLaren after signing Mercedes contract“. bbc.com. Sótt 13. apríl 2025.
  3. ↑ Alan Baldwin (13. desember 2021). „Verstappen wins first F1 title in last lap drama“. reuters.com. Sótt 13. apríl 2025.
  4. ↑ Nigel Chiu, Craig Slater (2. febrúar 2024). „Lewis Hamilton to leave Mercedes and join Ferrari for 2025 Formula 1 season“. skysports.com. Sótt 13. apríl 2025.

Ytri tenglar

[breyta | breyta frumkóða]