Gjaldþrot er þegar einstaklingur eða fyrirtæki lýsir sig vanhæfan til að greiða skuldir sínar með lögbundnum hætti. Lánadrottnar geta krafist gjaldþrotaskipta til að reyna að fá upp í hluta skulda þegar ljóst þykir að skuldari muni ekki standa við skuldbindingar sínar. Í meirihluta tilvika er það þó skuldarinn sem óskar eftir gjaldþrotaskiptum.

Í þeim tilvikum sem ríki verða gjaldþrota í heild sinni er oft talað um þjóðargjaldþrot [1], þótt það hugtakið standist ekki þar sem þjóð getur ekki orðið gjaldþrota en ríki getur það aftur á móti [2].

Tilvísanir

breyta
  1. ↑ „Þjóðargjaldþrot ef Ísland er neytt til samninga um Icesave“.
  2. ↑ „Hvað er átt við með þjóðargjaldþroti?“. visindavefur.is. Sótt 4. nóvember 2014.
  Þessi viðskiptafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.