Gíbraltarhöfði
Útlit

Gíbraltarhöfði er höfði á Gíbraltar við norðurhluta Gíbraltarsunds. Grikkir töldu hann aðra af súlum Heraklesar.
Höfðinn er um 6 km² klettur úr kalksteini sem varð til fyrir um 55 milljón árum á júratímabilinu þegar Afríkuflekinn rakst á Evrópu. Miðjarðarhafið varð þá að stöðuvatni sem þornaði svo upp.
Fyrir um 5 milljón árum braust svo Atlantshafið í gegnum Gíbraltarsund, flæddi inn og fyllti hið forna uppþornaða vatn og Miðjarðarhafið varð til í núverandi mynd.