Fara í innihald

Edinborg

Edinborg
Edinburgh
Þekkt kennileiti Edinborgar
Þekkt kennileiti Edinborgar
Fáni Edinborgar
Skjaldarmerki Edinborgar
Edinborg er staðsett í Skotlandi
Edinborg
Edinborg
Staðsetning í Skotlandi
Hnit: 55°57′12″N 3°11′21″V / 55.95333°N 3.18917°V / 55.95333; -3.18917
Ríki Bretland
Land Skotland
Flatarmál
 • Samtals263 km2
Mannfjöldi
 (2024)[1]
 • Samtals530.680
 • Þéttleiki2.000/km2
TímabeltiUTC+00:00 (GMT)
 • SumartímiUTC+01:00 (BST)
Vefsíðawww.edinburgh.gov.uk Breyta á Wikidata

Edinborg (enska: Edinburgh; skosk gelíska: Dùn Èideann) er höfuðborg Skotlands, önnur stærsta borg landsins eftir Glasgow og sjöunda stærsta borg Bretlands. Íbúar eru um 531.000 manns (2024).[1] Á stórborgarsvæðinu búa um 912.000 (2020).

Borgin stendur við suðurströnd Forthfjarðar á austurströnd Skotlands. Edinborg hefur verið höfuðborg Skotlands frá árinu 1437, þar er aðsetur skoska þingsins og skosku konungsfjölskyldunnar. Þar er einnig að finna Þjóðminjasafn Skotlands, Landsbókasafn Skotlands og Listasafn Skotlands. Edinborg er önnur stærsta miðstöð fjármála í Bretlandi á eftir London.

Edinborgarkastali er eitt af einkennum Edinborgar, en kletturinn þar sem hann stendur hefur verið notaður undir vígi allt frá 9. öld f.Kr. Holyrood-höll er opinber búsetustaður bresku konungsfjölskyldunnar í Skotlandi. Gamli bærinn og Nýi bærinn eru vernduð af heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Sögulega hefur Edinborg verið miðstöð fræðastarfs í Skotlandi, sérstaklega á sviði læknisfræði, skosks réttar, vísinda og verkfræði. Á tímum upplýsingarinnar var Edinborgarháskóli leiðandi í framförum á sviði vísinda. Þar störfuðu heimsþekktir fræðimenn á borð við David Hume, Adam Smith, Francis Hutcheson, Robert Burns, Adam Ferguson, John Playfair og Joseph Black. Edinborg er einnig þekkt víða fyrir tvær árlegar listahátíðir; Edinborgarhátíðina og Fringe-hátíðina sem haldnar eru í ágúst. Edinborg er annar vinsælasti áfangastaður ferðamanna sem halda til Bretlands með rúmlega milljón ferðamenn á ári.

Í fellinu Sæti Artúrs var ein fyrsta byggðin á svæðinu

Elstu merki um byggð á svæðinu eru í Cramond, þar sem fundust leifar af búðum frá miðsteinöld en þær eru taldar vera frá 8500 f.Kr. Einnig hafa fundist merki um byggð frá bronsöld og járnöld í kringum Castle Rock, Sæti Artúrs, Craiglockhart og Pentland-fell.

Þegar Rómverjar numu landi í héraðinu Lothian undir lok 1. aldar e.Kr. rákust þeir á keltneskan þjóðflokk sem þeir kölluðu Votadini. Fyrr á miðöldum komu Votadini undir konungsríkið Gododdin en „Eidyn“ var hérað í þessu konungsríki. Á þessum tíma var reist virki á Castle Rock, undir nafninu Din Eidyn, en það varð miðpunktur stjórnsýslu í konungsríkinu. Í velska ljóðinu Y Gododdin, sem samið var á miðöldum, er fjallað um hersveit sem safnaðist saman í Eidyn áður en farið var í rán. Talið er að viðburðurinn sem lýst er í ljóðinu hafi mögulega gerst í kringum árið 600 e.Kr.

Árið 638 hóf lið hermanna sem trúir voru Ásvaldi konungi af Norðymbralandi umsátur um virkið í Eidyn og kom Lothian undir stjórn Englanna. Áhrif þeirra voru áberandi næstu þrjár aldir til sirka 950 en þá yfirgáfu Englar virkið og Skotar lögðu það undir sig.

„Konungsborgin“ Edinborg (e. royal burgh) var stofnuð af Davíð 1. Skotakonungi snemma á 12. öld á jörð í eigu hans. Elstu skjölin um stofnun borgarinnar eru frá sirka 1124 til 1127. Það er jafnframt talið að Edinborgarskíri hafi verið stofnað þegar Davíð var við stjórn, en það náði yfir allt Lothian-hérað.

Fyrir 12. öld var búið að höggva allan skóg í kringum borgina til eldiviðar. Skógleysan gerði það að verkum að Edinborgarbúar nýttu sér mó til kyndingar, eins og annars staðar í Skotlandi.

Edinborg var að mestu leyti undir stjórn Englendinga frá 1291 til 1314 og aftur frá 1333 til 1341 á meðan á Skosku sjálfstæðisstríðunum stóð. Þegar Englendingar gerðu innrás í Skotland árið 1298 ákvað Játvarður 1. Englandskonungur ekki að ráðast á Edinborg og skipaði liði sínu að fara framhjá borginni.

Um miðja 14. öld lýsti franski sagnfræðingurinn Jean Froissart Edinborg sem höfuðborg Skotlands en Jakob 3. (1451–1488) sagði á 15. öld að Edinborg væri „aðalborg konungsríkis vors“. Edinborg þróaðist áfram og stækkaði þrátt fyrir áreitni Englendinga, sem meðal annars brenndu borgina árið 1544. Siðskipti Skota hófust fyrir alvöru í borginni á 16. öld en hún var jafnframt miðdepill Sáttmálahreyfingarinnar á 17. öld. Árið 1582 veitti Jakob 4. Skotakonungur borginni réttindi til að stofna háskóla, sem hét að fyrstu Tounis College eða „Bæjarskólinn“, en sá skóli varð seinna að Edinborgarháskóla.

Edinborg á 17. öld

Árið 1603 varð Jakob 4. Skotakonungur að Englandskonungi og konungsríkin Skotland og England voru sameinuð í Kórónusambandið svokallaða. Tilraunir Karls 1. Englandskonungs árið 1638 til að innleiða hefðir ensku kirkjunnar í Skotlandi mættu mótspyrnu Presbytera en þetta leiddi að lokum til Þríríkjastríðanna. Edinborg var hernumin af liði Oliver Cromwells árið 1650 í kjölfar stuðnings Skota við að gera Karl 2. aftur að Englandskonungi.

Á 17. öld lágu mörk Edinborgar enn um varnarmúra hennar. Borgarbúum fjölgaði mikið á þessum tíma sem gerði það að verkum að sífellt hærri hús voru reist til að hýsa þá. Ekki var óalgengt að hús næðu 11 hæðum en þau voru forverar skýjakljúfa nútímans. Flest þessi hús í gamla bænum hafa löngu verið rifin en lægri hús voru reist í þeirra stað á Viktoríutímabilinu. Árið 1611 var lögreglusveit stofnuð í borginni en hún er talin vera ein sú elsta í heimi.

Málverk af torgi fyrir framan Dómkirkju heilags Egidíusar seint á 18. öld

Eftir sáttmálagerð árið 1706 samþykktu þingin í Englandi og Skotlandi Sambandslögin sem sameinuðu löndin tvö undir Konungsríkið Stóra-Bretland þann 1. maí 1707. Í kjölfar þess var skoska þingið sameinað við það enska og úr varð breska þingið sem sat í Westminster í London. Margir Skotar mótmæltu sambandinu og óeirðir brutust út í borginni.

Snemma á 18. öld var Edinborg orðin ein þéttbyggðasta og óhreinasta borg Evrópu. Það kom þeim sem heimsóttu borgina á óvart að ólíkar stéttir bjuggu í sömu borgarhverfum, jafnvel sömu húsum. Samt var ákveðinn klofningur þar sem verslunarmenn og iðnaðarmenn bjuggu í kjallaraíbúðum og á neðri hæðum, en velmegandi borgarar á þeim efri.

Árið 1745 hertóku Jakobítar Edinborg um skeið á leið sinni til Englands. Eftir ósigur þeirra við Culloden var nokkuð um hefndaraðgerðir og tilraunir til að koma á friði. Á þessum tíma vildi borgarráðið fylgja fordæmi Lundúna með því að bæta umhverfi borgarinnar og ákvað að stækka hana til norðurs. Ráðið sýndi tryggð sína við Georg 3. Bretakonung með því að velja götuheiti í nýja bænum sem vísuðu til konungsfjölskyldunnar, t.d. George Street, Queen Street og Princes Street. Skipulag nýja bæjarins, þar sem götur liggja að mestu leyti eftir grind, var niðurstaða stórrar hönnunarkeppni sem haldin var af borgarráðinu árið 1766.

Í seinni hluta 18. aldar blómstraði Skoska upplýsingin í Edinborg, þar sem hugsuðir eins og David Hume, Adam Smith, James Hutton og Joseph Black voru þekktir og áberandi í borgarlífinu. Edinborg varð miðstöð þekkingar og fræðslu og fékk því viðurnefnið „Aþena norðursins“, en einnig að hluta til vegna gnægðar bygginga í nýklassískum stíl.

Upp úr 1770 byrjuðu velmegandi íbúar að flytja í nýja bæinn úr hinum gamla en þessi þróun gjörbreytti félagslífi borgarinnar.

19. og 20. öld

[breyta | breyta frumkóða]

Á 19. öld varð Edinborg iðnaðarborg, þó því er oft haldið fram að raunin hafi ekki verið sú. Mikilvægar atvinnugreinar á þessum tíma voru m.a. prentun og bjórgerð, en seinna bættust við gúmmígerð og verkfræðifyrirtæki. Glasgow leysti Edinborg af hólmi sem fjölmennasta borg Skotlands árið 1821.

Með tilkomu járnbrauta í kringum árið 1840 myndaðist blómstrandi verslunarhverfi í miðborginni milli Princes Street og George Street. Lífsskilyrðum í gamla bænum hrakaði mikið og hann varð að skuggahverfi þar sem lífslíkur voru lélegar. Borgarstjórinn William Chambers fór í umbætur á hverfinu í kringum 1860 og lét reisa þar mörg hús sem standa enn í dag. Fleiri umbætur fylgdu snemma á 20. öld þökk sé Patrick Geddes en lífsskilyrði í gamla bænum versnuðu aftur milli heimsstríða. Á sjöunda og áttunda áratug 20. aldar var skuggahverfið rutt og nýjar byggingar reistar, en þetta var umdeilt á sínum tíma.

Á tíunda áratugnum spratt upp fjármálahverfi á lóðum vestan við kastalann sem hýstu áður lestarstöð og brugghús. Edinborg er því önnur stærsta miðstöð fjármálastarfsemi og stjórnsýslu í Bretlandi. Um það bil þriðjungur skrifstofuhúsnæðis í borginni er notaður undir fjármálafyrirtæki. Edinburgh Park er nýtt skrifstofuhverfi í vesturhluta borgarinnar, nálægt flugvellinum.

Með Skotlandslögunum 1998 sem tóku gildi ári seinna var skosku þingi komið aftur á laggirnar ásamt ríkisstjórn í Edinborg. Þingið og ríkisstjórnin hafa sjálfstjórnarvald á mörgum sviðum en helstu undantekningar eru varnarmál, utanríkissmál og skattlagning (að stórum hluta) en þessum málaflokkum er stjórnað af breska þinginu í Westminster.

Landfræði

[breyta | breyta frumkóða]
Victoria Street í gamla bænum

Edinborg liggur í „miðbeltinu“ svokallaða (e. Central Belt) á milli hálandanna og suðurhluta Skotlands, á suðurhlið Forth-fjarðar. Miðborgin liggur 4 km fyrir suðvestan við ströndina í Leith og 42 km frá austurströnd Skotlands og Norðursjó við Dunbar. Gamli bærinn byggðist upp í kringum kastalann á Castle Rock, en oft er sagt að borgin sé byggð á sjö hæðum: Calton Hill, Corstorphine Hill, Craiglockhart Hill, Braid Hill, Blackford Hill, Sæti Artúrs og Castle Rock.

Borgarlandslag

[breyta | breyta frumkóða]
Séð úr Calton Hill

Borgin liggur á landspildu milli Forth-fjarðar til norðurs og Pentland Hills til suðurs. Svæðið í kringum borgina var einu sinni mjög eldvirkt en jökulrof hefur einnig sett svip sinn á landslagið. Gígtappar úr blágrýti sem mynduðust fyrir 350 til 400 milljónum ára sjást víða um borgina.

Castle Rock er dæmi um slíkan gígtappa en hann klauf ísbreiðu og mikill jökulruðningur var skilinn eftir austan við tappann. Jökullinn rauf djúpan dal norðan við gígtappann en í honum var lónið Nor Loch sem hefur verið framræst. Þessir eiginleikar Castle Rocks gerðu það að náttúrulegu virki og því var Edinborgarkastali reistur þar.

Sæti Artúrs er útdauð eldstöð sem myndaðist á kolatímabilinu en þar olli jökull miklu rofi þegar það skreið frá vestri til austurs á ísöld. Frekara rof á fjallinu afhjúpaði hamra og stuðlaberg sem sjást í dag. Salisbury Crags voru mynduð á sama hátt. Hverfin Marchmont og Bruntsfield í suðurhluta borgarinnar liggja á jökulöldu sem skapaðist þegar jökullinn hörfaði.

Áin Water of Leith liggur um borgina en uppspretta hennar er í Pentland Hills. Þaðan rennur hún um 29 km vatnsfall í gegnum suður- og vesturhluta borgarinnar áður en hún flæðir út í Forth-fjörð við Leith. Áin kemur næst miðborginni í hverfinu Dean Village en þar reisti Thomas Telford brú yfir hana árið 1832 þegar vegur var byggður til Queensferry. Göngustígur liggur eftir ánni um 19,6 km lengd frá Balerno til Leith.

Borgarmörkin takmarkast af Forth-firði til norðurs og vernduðu landi til austurs, suðurs og vesturs. Landið í kringum borgina var verndað árið 1957 til þess að koma í veg fyrir útþenslu byggðar. Strangar reglur gilda um byggð á þessu landi, en Edinborgarflugvöllur liggur á verndarsvæðinu. Það eru líka verndarsvæði innan borgarmarka, t.d. Holyrood Park og Corstorphine Hill.

Á þessu korti má sjá helstu hverfi í miðborginni

Edinborg varð til úr þorpum og bæjum sem halda enn daginn í dag í sérstakan blæ. Borgin gleypti þessar byggðir þegar hún stækkaði mikið á 19. og 20. öld. Í mörgum hverfum, eins og Dalry, eru einkennandi íbúðablokkir sem heita tenements, en í suður- og vesturhluta borgarinnar má finna minni fjölbýlishús og einbýlishús.

Miðborgin er klofin af Princes Street Gardens. Til suðurs setur Edinborgarkastali svip sinn á útsýnið, ásamt gamla bænum sem nær frá Castle Rock niður til Holyrood. Til norðurs liggur Princes Street og nýi bærinn.

Gamli og nýi bærinn

[breyta | breyta frumkóða]
Hús í gamla bæ Edinborgar

Gamli og nýi bær Edinborgar var skráður á Heimsminjaskrá UNESCO árið 1995, en í skráningunni er miðaldablær gamla bæjarins viðurkenndur ásamt skipulagi nýja bæjarins og hverfanna þar í kring. Í borginni eru rúmlega 4.500 friðlýst hús en þau eru hlutfallslega flest allra borga í Bretlandi.

Kastalinn liggur á gígtappa í gamla bænum og gatan Royal Mile nær niður frá honum til austurs og endar við Holyrood-höll. Litlar götur sem heita wynds liggja af Royal Mile eins og brjóstkassi. Vegna plássleysis voru mörg háhýsi reist í gamla bænum. Marghæða hús sem kölluð voru lands voru áberandi frá 16. öld en ekki var óalgengt að þau næðu tíu til ellefu hæðum. Eitt þeirra var fjórtán til fimmtán hæðir.

Eftir iðnbyltinguna voru hvelfingar byggðar undir götunni til að hýsa innflytjendur, einkum frá Írlandi. Við götuna eru margar fínar byggingar, meðal annars Dómkirkja heilags Egidíusar, ráðhúsið og dómshús. Torgið Grassmarket liggur þar fyrir neðan kastalann og tengist Royal Mile um Victoria Street.

Séð yfir nýja bæ Edinborgar

Nýi bærinn var reistur á 18. öld til að leysa þrengsli í gamla bænum þar sem byggð takmarkaðist við mjóan hrygg sem liggur niður frá kastalanum. Árið 1766 var haldin keppni til að hanna nýja bæinn en arkitektinn James Craig, sem var þá 27 ára að aldri, varð hlutskarpastur. Nýi bærinn var skipulagður eftir reglulegri grind en skipulagið flétti vel saman við hugmyndir upplýsingarinnar um röð og reglu.

Aðalgatan í nýja bænum átti að vera George Street sem fer eftir hrygg sem liggur norðan við gamla bæinn. Báðum megin við götuna liggja tvær aðrar aðalgötur: Princes Street og Queen Street. Aðalverslunargata borgarinnar er Princes Street en þar er lítið eftir af byggingum í georgískum stíl. Aðalgöturnar þrjár eru tengdar saman með hliðargötum. Við austurenda George Street er torgið St Andrew Square og en við vesturenda þess er Charlotte Square.

Arkitektinn Robert Adam teiknaði Charlotte Square en hönnun þess hafði mikil áhrif á byggð í nýja bænum fram á 19. öld. Bústaður æðsta ráðherra Skotlands, Bute House, stendur á norðurhlið torgsins.

Í dalnum milli gamla og nýja bæjarins var áður manngert lón sem hét Nor Loch en það var skapað til að verja kastalann. Í seinni tíð létu borgarbúar renna skólp í lónið. Það var tæmt í kringum árið 1820 þegar borgin var stækkuð til norðurs. Í upphafi vildi James Craig byggja síki þar sem lónið var en vikið var frá þessari hugmynd. Jarðvegur sem grafinn var upp þegar undirstöður voru byggðar undir hús í nýja bænum var notaður til að byggja brekku sem heitir The Mound, en hún tengir gamla bæinn við þann nýja.

Um miðja 19. öld var Listasafn Skotlands og Skoska konungsakademían reist á brekkunni. Lestargöng voru grafin í gegnum hana til að tengja lestarstöðvarnar Haymarket og Waverley.

Borgarhlutinn Southside liggur sunnan við kastalann og nær yfir hverfin St Leonards, Marchmont, Morningside, Newington, Sciennes, Grange og Blackford. Kveikjan að þróun þessa borgarhluta var brúin South Bridge, sem tengir hann við gamla bæinn, en hún var vígð í kringum 1780.

Í þessum borgarhluta búa margar fjölskyldur og nemendur, en bæði Edinborgarháskóli og Napier-háskóli eru nágrenni. Þar er líka að finna mörg hótel og gistiheimili, sem eru vinsæl hjá þeim sem sækja Fringe-hátíðina.

Íþróttir

[breyta | breyta frumkóða]

Knattspyrna

[breyta | breyta frumkóða]
Víðmynd sem sýnir Prinsagötu séð frá Scott minnismerkinu.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 „Mid-Year Population Estimates, United Kingdom, June 2024“. Office for National Statistics. 26. september 2025. Sótt 26. september 2025.